A2 hæfnispróf fyrir drónaflug í mars 2026
11. febrúar 2026
Næsta A2 hæfnispróf fyrir drónaflug verður haldið 4. mars hjá Samgöngustofu.

Prófið verður haldið í Flugröst
Næsta A2 hæfnispróf fyrir drónaflug verður haldið 4. mars næstkomandi kl. 10:00 í Flugröst, Nauthólsvegi 99, 102 Reykjavík.
Skráning er opin á prof.icetra.is, síðasti skráningardagur er 22. febrúar. Prófgjaldið er 7.462 kr. og greiðist við skráningu.
Vinsamlegast athugið:
Til að öðlast A2 réttindi þarf fyrst að hafa lokið A1/A3 hæfnisprófinu.
Til undirbúnings fyrir A2 prófið er mælt með yfirferð námsefnis á flydrone.is.
Verklegri þjálfun fyrir A2 þarf að vera lokið áður en réttindin eru skráð á skírteinið. Þessa þjálfun er hægt að framkvæma sjálfstætt með því að fylgja leiðbeiningum á flydrone.is.
Mælt er með því að skrá sig inn á flydrone.is fyrirfram og ganga úr skugga um að aðgangurinn virki vandræðalaust.
Athugið að A2 réttindi eru eingöngu nauðsynleg ef ætlunin er að fljúga C2-merktum dróna í undirflokki A2, þ.e. nálægt fólki í þéttbýli.
Fyrirspurnir varðandi prófið má senda á netfangið flydrone@samgongustofa.is.
