A2 hæfnispróf fyrir drónaflug
18. mars 2025
Næstu A2 hæfnispróf fyrir drónaflug verða haldin 9. apríl hjá Samgöngustofu.


Næstu A2 hæfnispróf fyrir drónaflug verða haldin 9. apríl næstkomandi kl. 09:00 og kl. 10:00 í húsakynnum Samgöngustofu, Ármúla 2, 108 Reykjavík.
Skráning opnar á prof.icetra.is kl 14:00 þriðjudaginn 18. mars og síðasti skráningardagur er 30. mars. Prófgjaldið er 7.210 kr. og greiðist við skráningu.
Vinsamlegst athugið:
Til að öðlast A2 réttindi þarf fyrst að hafa lokið A1/A3 hæfnisprófinu.
Til undirbúnings fyrir A2 prófið er mælt með yfirferð námsefnis á flydrone.is.
Verklegri þjálfun fyrir A2 þarf að vera lokið áður en réttindin eru skráð á skírteinið. Þessa þjálfun er hægt að framkvæma sjálfstætt með því að fylgja leiðbeiningum á flydrone.is.
Mælt er með því að skrá sig inn á flydrone.is fyrirfram og ganga úr skugga um að aðgangurinn virki vandræðalaust.
Athugið að A2 réttindi eru eingöngu nauðsynleg ef ætlunin er að fljúga C2-merktum dróna í undirflokki A2, þ.e. nálægt fólki í þéttbýli.
Fyrirspurnir varðandi prófið má senda á netfangið flydrone@samgongustofa.is.