Í dagstofunni er stórt sjónvarp, auk þess eru minni sjónvörp á öllum sjúkrastofum deildarinnar sem og internettenging. Geta sjúklingar því haft með sér tölvur, farsíma eða annan þess háttar búnað. Á deildinni er ein nettengd fartölva sem sjúklingar hafa afnot af. Í dagstofunni eru ýmsar bækur og tímarit fyrir sjúklingana sem öllum er velkomið að lesa.
Í dagstofunni er ísskápur þar sem sjúklingar geta geymt mat og drykki.
Á deildinni er aðstandendaherbergi sem fjölskylda og aðstandendur mikið eða langveikra sjúklinga geta haft afnot af. Þar er ísskápur og örbylgjuofn. Herbergið er einnig notað fyrir fjölskyldufundi. Aðstandendur geta hringt á deildina og fengið samband við sjúklinga.