Mönnun helsta áskorun eftir heimsfaraldur - segir Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins
Um leið og afstaðinn heimsfaraldur hefur tekið mikinn toll af starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri er mikinn lærdóm að draga af tímabilinu og nýir möguleikar í þjónustunni hafa opnast.
Þetta kom fram í ávarpi Hildigunnar Svavarsdóttur forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri á ársfundi fyrir starfsárið 2022 sem fram fór fyrr í dag.