Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar 2023

2. febrúar 2023

Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali.

Starfsemistölur fyrir janúar 2023, fréttamynd

Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga í janúar árið 2023 eru 2689 og er meðalfjöldi legudaga 4,7. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru tæplega 76% af heildarinnlögnum. Að meðaltali liggja 6,7 sjúklingar inni á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili. Rúmanýting á lyflækninga- og skurðlækningadeild er rúmlega 93,1% í janúar.

Tæplega 2186 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 198 vegna krabbameinslyfjagjafar. Komur á dagdeildir eru 566. Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað 1379 einstaklingar samanborið við rúmlega 1100 á sama tíma í fyrra. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 39 mínútur sem er rétt innan þeirra viðmiða sem við setjum okkur. Skurðaðgerðir í janúar voru 212 og eru þær færri en áætlað var þar sem fækka þurfti aðgerðum vegna álags og manneklu. Ríflega 1/4 aðgerða eru bráðaaðgerðir í janúar. Gerðar hafa verið 34 gerviliðaaðgerðir til þessa. Fjöldi rannsókna allt árið 2022 var rúmlega 333000 og þar af 41,500 PCR rannsóknir.

Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var tæplega 2400 og gerir það að meðaltali um 76,6 rannsóknir á dag.  Í janúar fæddust 27 börn samanborið við 39 börn á sama tíma í fyrra. Eitthvað er um komur ósjúkratryggðra utan sumarleyfistíma en mikil aukning hefur verið undanfarið ár. Í janúar hafa fjórir ósjúkratryggðir einstaklingar legið inni á SAk.