Vísindavaka 2026
12. október 2026
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) í samvinnu við Háskólann á Akureyri (HA) tóku nýlega þátt í Vísindavöku, uppskeruhátíð vísindanna á Íslandi.

Á sameiginlegu kynningarsvæði stofnananna gafst gestum kostur á að kynnast starfseminni. Sjúkrabíll SAk vakti mikla athygli og fengu gestir að skoða hann að innan. Einnig gátu þeir prófað að gefa barnadúkku „lyf“ í kennsluskyni, hlustað á andardrátt kennsludúkku með hlustunarpípu og kynnt sér verkefni tengt skráningu hjartastuðtækja. Fyrir hönd SAk voru á staðnum Jón G. Knutsen, Hilda Jana Gísladóttir, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir og Þorbjörg Katrín Davíðsdóttir og voru þau sammála um að dagurinn hefði heppnast vel.