Valdís Ösp Jónsdóttir hefur lokið sérfræðinámi í bráðahjúkrun
15. október 2026
Valdís Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri, lauk sérfræðinámi í bráðahjúkrun í júní 2026 og hefur hlotið sérfræðileyfi á því sviði.

Sérfræðileyfið er viðurkenning á víðtækri menntun, reynslu og sérhæfðri þekkingu Valdísar á sviði bráðahjúkrunar. Hún er annar tveggja hjúkrunarfræðinga með sérfræðileyfi í bráðahjúkrun sem starfa nú á bráðamóttöku SAk og sá þriðji á sjúkrahúsinu.
"Mér finnst þetta mikilvægur áfangi, bæði faglega og persónulega. Ég vona að aukin sérhæfing mín nýtist bæði skjólstæðingum og samstarfsfólki og stuðli að áframhaldandi þróun á sviði bráðahjúkrunar." segir Valdís Ösp.
Við óskum Valdísi Ösp innilega til hamingju með áfangann!