Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Tveir nýir röntgenlæknar til starfa á myndgreiningadeild

4. mars 2026

Sérfræðingarnir Bjarki Ívarsson og Sigríður Margrét Möller hefja störf á myndgreiningadeild Sjúkrahússins á Akureyri 1. apríl næstkomandi. Þar með er myndgreiningadeild fullmönnuð.

Sérfræðingarnir Sigríður Margrét Möller og Bjarki Ívarsson

Bjarki lauk sérnámi í myndgreiningu við háskólasjúkrahúsið í Árósum í Danmörku og hefur starfað bæði erlendis og hérlendis, meðal annars hjá Röntgen Domus. Sigríður Margrét lauk sérnámi í röntgenlækningum í Noregi og hefur starfað bæði þar og hérlendis, meðal annars hjá Röntgen Domus.

Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins.