Tveir læknar á SAk meðal höfunda yfirlitsgreinar í Læknablaðinu um sýklasótt hjá börnum
1. júlí 2026
Dr. Björn Gunnarsson, klínískur gæðastjóri á SAk og sérfræðingur í barnalækningum, barnagjörgæslulækningum og svæfinga- og gjörgæslulækningum er aðalhöfundur nýrrar yfirlitsgreinar sem birtist í júníhefti Læknablaðsins. Meðhöfundar greinarinnar eru Bergþór Steinn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum og bráðalækningum barna á SAk og dr. Theódór Skúli Sigurðsson sérfræðingur sérfræðingur í barnasvæfinga- og gjörgæslulækningum á LSH.

Greinin, sem ber heitið „Börn með sýklasótt“, tekur saman nýjustu þekkingu um greiningu og meðferð sýklasóttar hjá börnum. Sýklasótt er lífshættulegt ástand sem verður þegar viðbrögð líkamans við sýkingu valda truflun á starfsemi líffæra. Þótt sjúkdómurinn sé sjaldgæfur hér á landi er hann enn ein helsta dánarorsök barna vegna sýkinga á heimsvísu.
Í greininni er lögð áhersla á mikilvægi þess að greina sýklasótt snemma, þar sem fyrstu einkenni geta verið ósértæk og þróast hratt. Höfundar fara yfir ný alþjóðleg greiningarskilmerki, klínískt mat og þær rannsóknir sem styðja við greiningu. Jafnframt er fjallað um helstu meginatriði meðferðar, þar sem tímanleg gjöf sýklalyfja, vökvameðferð og markviss stuðningsmeðferð geta skipt sköpum fyrir horfur barna með sýklasótt.
Markmið greinarinnar er að draga saman nýjustu þekkingu á þessu mikilvæga viðfangsefni og styðja heilbrigðisstarfsfólk við að greina og meðhöndla sýklasótt hjá börnum samkvæmt bestu fáanlegu gögnum. Undirstrikað er mikilvægi þess að þekkja fyrstu einkenni sýklasóttar og bregðast hratt við, enda getur snemmbær greining og meðferð skipt sköpum fyrir horfur barna.
Lesa má greinina hér: Yfirlitsgrein. Börn með sýklasótt | 06.tbl. 112. árg. 2026 | Læknablaðið