Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Tímabundinn forgangur fyrir börn heilbrigðisstarfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar

19. febrúar 2026

Vegna vöntunar á sérhæfðu starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Akureyri, hefur bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkt að veita læknum og hjúkrunarfræðingum við SAk tímabundinn forgang að skólavist í leikskólum bæjarins.

akureyri.is

Framkvæmdastjórn SAk fagnar þessari ákvörðun „Við teljum þetta mikilvægan lið í að auðvelda okkur að laða að sérhæft starfsfólk. Við erum því ákaflega þakklát bæjarstjórn fyrir að hafa tekið þessa mikilvægu ákvörðun.“ Segir Erla Björnsdóttir, starfandi forstjóri SAk og bætir við „Við þurfum öll sem eitt að leggja okkar að mörkum til að tryggja stöðugleika í starfsemi sjúkrahússins. Ákaflega mikilvægt er að allir hlekkir þjónustukeðjunnar taki þátt í þeirri vinnu, í góðri samvinnu við Heilbrigðisráðuneytið. Við verðum sameiginlega að vinna að eflingu þjónustunnar og uppbyggingu mannauðs þannig að við séum í stakk búin til að sinna okkar hlutverki í þjónustu við íbúa, sem og okkar ábyrgð sem varasjúkrahús landsins alls.

Hér má sjá frétt um málið á vef Akureyrarbæjar: Tímabundinn forgangur fyrir börn heilbrigðisstarfsfólks í leikskólum Akureyrarbæjar - Akureyri