Tilkynning frá Lífeðlisfræðideild vegna stöðvunar á þjónustu við kæfisvefnsvélar
24. júní 2026
Frá 29. júní verður ekki lengur boðið upp á innstillingar og almenna þjónustu í tengslum við kæfisvefnsvélar við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Þeim sem þurfa á þjónustunni að halda er bent á Svefnrannsóknadeild LSH í Fossvogi, sem áfram sér um að útvega kæfisvefnsvélar og varahluti. Vonir eru bundnar við að þjónustan verði aftur í boði með haustinu og verður það auglýst síðar.