Þrír styrkir veittir úr Vísindasjóði SAk
25. september 2026
Vísindasjóður Sjúkrahússins á Akureyri hefur úthlutað styrkjum til þriggja rannsóknarverkefna í ár. Styrkveitingarnar styðja við vísindastefnu sjúkrahússins, þar sem lögð er áhersla á að efla rannsóknir og nýta nýja þekkingu til að bæta heilbrigðisþjónustu.

Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir, Þórhalla Sigurðardóttir, Ragnheiður Harpa Arnardóttir og Karen Sif Jónsdóttir
Formaður sjóðsins, Karen Sif Jónsdóttir, afhenti styrkina.
Styrki hlutu:
Ragnheiður Harpa Arnardóttir til rannsóknar á umfangi, eðli, ástundun og árangri viðhaldsþjálfunar fyrir fólk með hjarta- og/eða lungnasjúkdóma á HL-stöðvunum í Reykjavík og á Akureyri á árunum 2010–2026. Markmið rannsóknarinnar er að skoða umfang, nýtingu og árangur viðhaldsþjálfunar Hjarta- og lungnastöðvanna og meðal annars kanna hvort munur sé á árangri eftir kyni og því hvort þátttakendur séu með hjarta- eða lungnasjúkdóm.
Þórhalla Sigurðardóttir til rannsóknar á viðhorfum og reynslu hjúkrunarfræðinga af hjúkrun fólks með krabbamein á bráðamóttökum og mati þeirra á eigin hæfni og þekkingu. Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf og reynslu hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökum af hjúkrun einstaklinga með krabbamein og skoða hvernig þeir meta eigin hæfni, þekkingu og sjálfsöryggi í slíkum aðstæðum.
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir til rannsóknar á ánægju hjúkrunarnema með hermikennslu á endurlífgunarnámskeiði. Markmið rannsóknarinnar er að kanna ánægju fjórða árs hjúkrunarnema með hermikennslu á stöðluðu ILS-námskeiði og meðal annars skoða hvort munur sé á ánægju eftir kennsluumhverfi.