Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Þekking sem breytir heilbrigðisþjónustu á Vísindadegi SAk og HA

23. september 2026

Vísindadagur Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisvísindastofnunar Háskólans á Akureyri og SAk verður haldinn fimmtudaginn 24. september 2026. Yfirskrift dagsins er „Þekking sem breytir heilbrigðisþjónustu“.

Dagskráin fer fram í Kjarna á 3. hæð Sjúkrahússins á Akureyri og verður jafnframt hægt að fylgjast með henni í gegnum Teams.

Guðjón Hauksson, forstjóri SAk, opnar Vísindadaginn kl. 10.00. Í kjölfarið verða flutt fjölbreytt erindi sem endurspegla vísinda-, þróunar- og nýsköpunarstarf innan SAk og samstarfsstofnana.

„Öflugt vísinda- og þróunarstarf er forsenda þess að við getum stöðugt bætt heilbrigðisþjónustuna. Vísindadagurinn sýnir vel þá fjölbreyttu þekkingu sem býr innan SAk og hversu mikilvægt samstarf sjúkrahússins við Háskólann á Akureyri og aðrar stofnanir er,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri SAk.

Meðal viðfangsefna dagsins eru til að mynda svefnrannsókn meðal barna, myndgreining hjá ungmennum eftir alvarleg slys og stuðningur við ungmenni eftir sjálfsvíg. Einnig verður fjallað um hönnun og innleiðingu stafrænnar heilbrigðislausnar fyrir fólk með sykursýki.

Eftir hádegishlé verður sjónum beint að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og norðurslóðum. Þar verður meðal annars rætt um hlutverk hjúkrunarfræðinga í öruggri og sjálfbærri heilbrigðisþjónustu, reynslu hjúkrunarfræðinga sem sinna vaktstjórn á landsbyggðarsjúkrahúsum og alþjóðlegt námskeið í heilsufarsmati og hermikennslu.

„Vísindadagurinn er mikilvægur vettvangur til að miðla nýrri þekkingu, efla samtal og samstarf milli háskólasamfélagsins og heilbrigðisþjónustu og sýna hvernig rannsóknir og nýsköpun geta stuðlað að betri þjónustu við sjúklinga,“ segir Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar SAk.

Deginum lýkur með kaffi og tertum á milli kl. 14.30 og 16.00. Þá verður jafnframt boðið upp á kynningar á meistaranámi, sérnámi og doktorsnámi og gefst starfsfólki tækifæri til að kynna sér námsleiðirnar.

Vísindadagur SAk og Heilbrigðisvísindastofnunar HA og SAk
Fimmtudagur 24. september 2026, kl. 10.00–16.00
Kjarni, 3. hæð SAk, og á Teams

Nánari upplýsingar um viðburðinn og dagskrána má finna hér: https://fb.me/e/7QVvETFo3