Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Tengigangur að fá á sig mynd

29. janúar 2024

Vinna við tengigang Sjúkrahússins á Akureyri er vel á veg komin og bjartsýnustu spár segja að hann verði tekinn í notkun í apríl. Þessa dagana er verið að setja upp glerveggi, vinna að lokafrágangi s.s. loftræstingar, raflagnavinnu, dúklagninga, kerfislofts og málningarvinnu. Í framhaldinu koma innréttingar og tæknibúnaður.

Framkvæmdir við tengigang

Tengigangurinn er á þriðju hæð sjúkrahússins og tengir fæðingardeild við barnadeild, einnig mun tengigangurinn hýsa nýtt og rýmra hermisetur og færist starfsfólk mennta- og vísindadeildar í heild sinni á ganginn. Þá verður á ganginum nýtt og glæsilegt fyrirlestrarými, nokkur fundarherbergi ásamt fjölda skrifstofa.

„Við erum búin að bíða lengi eftir tengiganginum sem verður þörf viðbót við húsnæði sjúkrahússins. Ég hef áður gert mér væntingar um að ársfundurinn verði haldinn á tengiganginum en nú ætti það að ganga upp,“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir.

Framkvæmdir við tengigang