Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Stefán Þengilsson, athafnamaður, afhendir bráðamóttöku listaverk

19. janúar 2026

Stefán Þengilsson, athafnamaður í Höfn á Svalbarðsströnd, gaf bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri tvö listaverk.

Stefán Þengilsson við listaverkin

Kristín Ósk Hólm Ragnarsdóttir, deildarstjóri á bráðamóttöku segir deildina ver þakkláta fyrir gjöfina „Við komum að máli við Stefán og spurðum hvort að hann væri reiðubúinn að gefa deildinni verk. Það skiptir máli að geta lífgað upp á rýmin hjá okkur, hvort heldur sem er í setustofu eða í aðstandendaherbergi. Listin gleður augað og veitir hlýleika sem við viljum geta sýnt því fólki sem þarf að leita til okkar. Við erum því ákaflega ánægð með þessa góðu gjöf“ segir Kristín.