Starfsfólk frá Akureyrarklíníkinni sótti alþjóðlega ráðstefnu í Amsterdam
3. september 2026
Fimm starfsmenn Akureyrarklíníkurinnar tóku nýverið þátt í alþjóðlegu ISLC-PAIS ráðstefnunni í Amsterdam, þar sem saman komu sérfræðingar, vísindafólk og heilbrigðisstarfsfólk víðs vegar að úr heiminum til að miðla nýjustu þekkingu á ME, Long COVID og öðrum langvinnum veikindum í kjölfar sýkinga.

Kristín Brynja Árnadóttir, Friðbjörn Sigurðsson, Þórdís Gísladóttir, Ingibjörg Ingólfsdóttir, Unnsteinn Ingi Júlíusson, Anna Kristrún Sigmarsdóttir
Á ráðstefnuna fóru Friðbjörn Sigurðsson læknir, Unnsteinn Ingi Júlíusson læknir, Kristín Brynja Árnadóttir iðjuþjálfi, Ingibjörg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur og Þórdís Gísladóttir deildarstjóri.
Á ráðstefnunni var fjallað um nýjustu rannsóknir og þróun á sviði ME, Long COVID og skyldra veikinda, meðal annars hvað varðar greiningu, meðferð og þjónustu við einstaklinga sem glíma við langvinn einkenni. Þátttakan veitti starfsfólki Akureyrarklíníkurinnar dýrmætt tækifæri til að kynna sér nýjustu þekkingu og rannsóknir, miðla reynslu og efla tengsl við sérfræðinga og samstarfsaðila víðs vegar að úr heiminum.
Akureyrarklíníkin hefur á undanförnum árum byggt upp sérhæfða þekkingu og þjónustu fyrir einstaklinga með ME og langvarandi einkenni Covid. Þverfaglegt teymi starfar við klíníkina og er lögð áhersla á heildstæða þjónustu, ráðgjöf og eftirfylgd.
Þátttaka starfsfólks Akureyrarklíníkurinnar á alþjóðlegum vettvangi er mikilvægur liður í áframhaldandi þróun þjónustunnar. Með því að fylgjast með nýjustu rannsóknum, miðla reynslu og byggja upp tengsl við sérfræðinga erlendis er hægt að nýta nýja þekkingu í starfi klíníkurinnar og þróa þjónustuna áfram í takt við framfarir á þessu sviði.