Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar til mars 2023

4. apríl 2023

Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali

Starfsemistölur

Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 8148 og er meðaldvöl á deild 4,7 dagar. Meðalfjöldi legudaga í þjónustuflokki er 5,7.  Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru tæplega 76% af heildarinnlögnum. Að meðaltali liggja 7,4 sjúklingar inni á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili en veruleg aukning hefur verið undanfarnar vikur . Rúmanýting á lyflækninga- og skurðlækningadeild er 102% á tímabilinu. Mikið álag hefur verið á legudeildunum og er rúmanýting á geðdeild, lyflækningadeild og skurðlækningadeild vel yfir 100% bara í mars.

Um 4850 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 524 vegna krabbameinslyfjagjafar. Komur á dagdeildir eru 1699. Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað rúmlega 3900 einstaklingar samanborið við tæplega 3400 á sama tíma í fyrra og aukningin því umtalsverð. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 40 mínútur sem er það viðmið sem við setjum okkur.

Skurðaðgerðir í janúar-mars voru 687 og eru þær færri en áætlað var þar sem fækka hefur þurft aðgerðum vegna álags og manneklu. Ríflega 30% aðgerða eru bráðaaðgerðir. Gerðar hafa verið 108 gerviliðaaðgerðir til þessa.

Fjöldi rannsókna fyrstu tvo mánuði ársins voru rúmlega 47700. Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 7700 og gerir það að meðaltali um 85,7 rannsóknir á dag.  Á tímabilinu janúar til mars fæddust 86 börn samanborið við 113 börn á sama tíma í fyrra. Fjöldi ósjúkratryggðra hefur farið vaxandi frá áramótum en mikil aukning hefur verið í komum / innlögnum þessa hóps. Á tímabilinu hafa þrettán ósjúkratryggðir einstaklingar legið inni á SAk samanborið við átta í fyrra.