Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar til maí 2024

10. júní 2024

Samdráttur í fjölda ferðamanna sem leita á SAk

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape

  • Fjöldi dvalardaga þessa fimm mánuði var rúmlega 11.566 sem er um 17% fækkun frá því í fyrra en að sama skapi er fækkun sjúklinga sem þurfa að leggjast inn um 3,5%. Dvalir einstaklinga eru aðeins styttast og meðalfjöldi dvaladaga eru núna 4,7 dagar samanborið við 4,8 í fyrra.

  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 73% af heildarinnlögnum.

  • Að meðaltali eru um sex til sjö sjúklingar inniliggjandi á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.

  • Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er lyflækningadeild með 92,6% nýtingu, skurðlækningadeild með rúmlega 83%

    sem er ívíð minna en í fyrra og á það sama við um geðdeildina. Ástæðan er sú sama og að ofan að útskriftir eiga sér stað fyrr en áður og rúmanýting þannig betri.

Starfsemistölur janúar til maí 2024
  • Rúmlega 6.400 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af

  • 977 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 886 lyfjagjafir á sama tíma í fyrra og er stöðug aukning í þeirri þjónustu.

  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta 7.540 samanborið við

    7.482 á sama tíma í fyrra (sjá graf um komur á bráðamóttöku janúar til maí ár hvert). Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku hefur aukist lítillega og er nú um 45

    mínútur sem er aðeins fyrir utan viðmið okkar um 40 mínútna bið eftir lækni.

starfsemistölur janúar til maí 2024 - mynd 2
  • Fjöldi skurðaðgerða þessa fimm mánuði ársins voru 1.125 sem er sambærilegt og í fyrra. Tæplega 29% aðgerða voru bráðaaðgerðir og gerviliðaaðgerðir 169 á móti 175 gerviliðaaðgerðum í fyrra.

  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 17.000 og gerir það að meðaltali um 112 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur. Sambærileg starfsemi er á rannsóknadeild og lífeðlisfræðideild eins og í fyrra.

  • Enn heldur áfram aukning í fæðingum miðað við í fyrra en í ár hafa fæðst 168 börn samanborið við 160 börn á sama tíma í fyrra.

  • Sjá má lítilsháttar fækkun í komum og innnlögnum ósjúkratryggðra miðað við sama tímabil í fyrra.