Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Starfsemistölur fyrir janúar - september 2024

7. október 2024

Færri innlagnir og fækkun í fjölda ferðamanna sem leita til SAk.

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape
  • Fjöldi dvalardaga á tímabilinu janúar til september var rúmlega 19.187 sem er um 15% fækkun frá því í fyrra en að sama skapi er fækkun sjúklinga sem þurfa að leggjast inn um 11%. Dvalir einstaklinga eru aðeins styttast og meðalfjöldi dvaladaga allra deilda eru núna 4,4 dagar samanborið við 4,6 í fyrra.

  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um77,1% af heildarinnlögnum.

  • Að meðaltali eru um tíu sjúklingar inniliggjandi á hverjum tíma sem eru með gilt færni- og heilsumat eða slíkt í vinnslu.

  • Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er lyflækningadeild með 87,5% nýtingu og skurðlækningadeild með rúmlega 80% yfir tímabílið. Rúmanýting er minni á öllum deildum SAk og er ein af ástæðunum sú sama og að ofan greinir að útskriftir eiga sér stað fyrr en áður og rúmanýting þannig betri en auk þess er minna um innlagnir. Geðdeildin hefur verið með helming rúma lokuð undanfarna tvo mánuði vegna vinnu við lagfæringar á geðdeild.

Tafla 1 með starfsemistölum janúar - september 2024
  • Rúmlega 8.800 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 1.724 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 1.651 á sama tíma í fyrra og er stöðug aukning í þeirri þjónustu.

  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta sá sami og í fyrra eða 13.473 samanborið við 13.639 á sama tíma í fyrra (sjá graf um komur á bráðamóttöku janúar til september ár hvert). Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er nú um 45 mínútur en viðmið okkar eru um 40 mínútna bið eftir lækni.

Tafla 2 með starfsemistölum janúar - september 2024
  • Fjöldi skurðaðgerða janúar til september voru 1.761 sem er aðeins minna en í fyrra þegar 1940 aðgerðir voru gerðar yfir sama tímabil. Rúmlega 34% aðgerða voru bráðaaðgerðir og gerviliðaaðgerðir 221 á móti 246 gerviliðaaðgerðum í fyrra.

  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 30.100 og gerir það að meðaltali um 110 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur.

  • Rannsóknir á rannsóknadeild hafa dregist aðeins saman undanfarin ár (sjá súlurit) en fjöldi rannsókna á lífeðlisfræðideild er sambærilegur og verið hefur undanfarin ár.

Tafla 3 með starfsemistölum janúar - september 2024
  • Á ár hafa fæðst 293 börn samanborið við 307 börn á sama tíma í fyrra.

  • Töluverð fækkun er í komum og innnlögnum ósjúkratryggðra miðað við sama tímabil í fyrra. Bráðamóttakan hefur sinnt rúmlega 600 ósjúkratryggðum einstaklingum og 94 hafa verið á legudeildum SAk en í fyrra höfðu verið lagðir inn 107 einstaklingar og um 680 einstaklingar leitað á bráðamóttökuna. Um er að ræða 13% fækkun.