Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar - september 2023

5. október 2023

14% inniliggjandi einstaklinga bíða eftir föstu plássi á hjúkrunarheimili

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape
  • Fjöldi dvalardaga fyrir ofangreint tímabil eru 22.252, sem er um 8,4% meira en á sama tíma og í fyrra. Meðaldvöl á deild er 4,6 dagar.

  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 78,1% af heildarinnlögnum.

  • Mikið álag hefur verið á legudeildunum og er rúmanýting á lyflækningadeild 100,8% og á skurðlækningadeild 97,5% á tímabilinu. Einnig hefur verið töluvert álag á geðdeildinni á þessu ári og rúmanýting þar á tímabilinu 88,1% samanborið við 72,3% í fyrra.

  • Í lok september biðu um um 14% inniliggjandi einstaklinga á bráðalegudeildum og Kristnesspítala eftir föstu plássi á Heilsuvernd hjúkrunarheimili á Akureyri en að meðaltali eru um 6,6, einstaklingar inniliggjandi sem eru búnir í meðferð eða bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.

  • Um 4% aukning er í komum á göngudeildir en 8.879 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 1.621 vegna krabbameinslyfjagjafar. Komur á dagdeildir eru 4.680.

  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað 9.839 einstaklingar samanborið við 9.130 á sama tíma í fyrra og því aukningin milli ára tæplega 8% yfir tímabilið. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 42 mínútur en viðmið SAk er 40 mínútur í bið.

  • Skurðaðgerðir í janúar-september voru 1.941 og eru 35% aðgerða bráðaaðgerðir. Gerðar hafa verið 246 gerviliðaaðgerðir til þessa.

  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var um 30.500 og gerir það að meðaltali um 111 rannsóknir á dag.

  • Á tímabilinu janúar til september fæddust 307 börn samanborið við 335 börn á sama tíma í fyrra.

  • Mikil aukning hefur verið í komum ferðamanna á árinu og er rúmlega 37% aukning milli ára í komum ósjúkratryggðra á bráðamóttöku. Að sama skapi hefur innlögðum einstaklingum fjölgað lítillega á tímabilinu en er þó sambærileg og í fyrra með áberandi toppi yfir sumarmánuðina (sjá mynd).

Þróun í fjölda innlagðra ósjúkratryggðra