Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar – nóvember 2023

4. desember 2023

Um 20% aukning hefur verið í bráðakomum einstaklinga 75 ára og eldri síðan fyrir Covid-19 með tilheyrandi aukningu þessa aldurshóps í innlögn á deildir SAk.

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape

Fjöldi dvalardaga fyrir ofangreint tímabil eru 27.366, sem er um 6% meira en á sama tíma og í fyrra og er meðaldvöl á deild 4,7 dagar.

Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 77% af heildarinnlögnum.

Mikið álag hefur verið á legudeildunum og er rúmanýting á lyflækningadeild 101,3% og á skurðlækningadeild 97,5% á tímabilinu. Einnig hefur verið töluvert álag á geðdeildinni á þessu ári og rúmanýting þar á tímabilinu 86,4% samanborið við 74,4% í fyrra.

Um 20% aukning hefur verið í bráðakomum einstaklinga 75 ára og eldri síðan fyrir Covid-19 með tilheyrandi aukningu þessa aldurshóps í innlögn á deildir SAk.

Að meðaltali eru um 6,4 einstaklingar inniliggjandi sem eru búnir í meðferð eða bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.

Um 10.148 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 1.990 vegna krabbameinslyfjagjafar og er það um 5% aukning frá sama tíma í fyrra. Komur á dagdeildir eru 5.711.

Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað 9.774 einstaklingar samanborið við 8.969 á sama tíma í fyrra og því aukningin milli ára tæplega 9% yfir tímabilið. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 43 mínútur og er það rétt yfir viðmiðum okkar um 40 mínútna bið eftir lækni.

Skurðaðgerðir í janúar-nóvember voru 2.434 og er 33% aðgerða bráðaaðgerðir. Gerðar hafa verið 311 gerviliðaaðgerðir til þessa.

Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var um 37.362 og gerir það að meðaltali um 112 rannsóknir á dag.

Á tímabilinu janúar til nóvember fæddust 382 börn samanborið við 409 börn á sama tíma í fyrra sem samsvarar 1,7 nýjum einstaklingi á dag.

Mikil aukning hefur verið í komum ferðamanna á árinu og er rúmlega 33% aukning milli ára í komum ósjúkratryggðra á bráðamóttöku. Að sama skapi er fjöldi innlagðra svipaður og í fyrra með áberandi toppi yfir sumarmánuðina.