Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar-mars 2024

9. apríl 2024

Aukin fæðingatíðni

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape
  • Fjöldi dvalardaga þessa þrjá mánuði var 6.756 sem er heldur færra en í fyrra. Dvalir einstaklinga eru að styttast og meðalfjöldi dvala eru núna 4,4 dagar samanborið við 4,9 í fyrra.

  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um74% af heildarinnlögnum.

  • Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er lyflækningadeild með tæplega 100% nýtingu, skurðlækningadeild með rúmlega 83% sem er ívíð minna en í fyrra og á það sama við um geðdeildina. Ástæðan er sú sama og að ofan að útskriftir eiga sér stað fyrr en áður og rúmanýting þannig betri.

  • Legurúmafjöldi barnadeildar hefur verið 8 hingað til en hefur verið endurskilgreindur og er nú fjöldi legurýma 6 (þar af 2 vökudeildarrými) og 2 dagdeildarrými en þannig má sjá raunverulega nýtingu legurýma betur.

  • Rúmlega 4.560 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 570 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 550 lyfjagjafir á sama tíma í fyrra og er stöðug aukning í þeirri þjónustu.

  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta 4.568 samanborið við 4.440 á sama tíma í fyrra og því sambærilegt og á sama tíma í fyrra. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er nú um 42 mínútur sem nálægt viðmiðum okkar um 40 mínútna bið eftir lækni.

  • Fjöldi skurðaðgerða fyrstu þrjá mánuði ársins voru 683 sem er sambærilegt og í fyrra. Um 27,2% aðgerða voru bráðaaðgerðir og gerviliðaaðgerðir 101 á móti 108 gerviliðaaðgerðum í fyrra.

  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var um 10.144 og gerir það að meðaltali um112 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur. Lítillega hefur dregist saman í öðrum rannsóknum s.s. á lífeðlisfræðideild.

  • Aukin fæðingartíðni var á tímabilinu en í ár hafa fæðst 106 börn samanborið við 84 börn á sama tíma í fyrra.

  • Árið byrjar sambærilega og í fyrra varðandi komur og innlagnir ósjúkratryggðra.