Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar-maí 2023

2. júní 2023

Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali (PDF). Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 13.516 og er meðaldvöl á deild 4,8 dagar. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru tæplega 76% af heildarinnlögnum.

Gömul mynd - Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk

Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir  sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali (PDF).  Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 13.516 og er meðaldvöl á deild 4,8 dagar. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru tæplega 76% af heildarinnlögnum. Mikið álag hefur verið á legudeildunum og er rúmanýting á lyflækninga- og skurðlækningadeild rúmlega 101% á tímabilinu.  Að meðaltali liggja 7,9 sjúklingar inni á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.  Í lok maí voru 21% rýma á lyflækninga-, skurðlækninga- og sjö daga deild á Kristnesspítala nýtt af þeim einstaklingum en töluverð aukning hefur verið undanfarnar vikur varðandi fjölda þeirra sem  eru búnir í meðferð og bíða eftir plássi á hjúkrunarheimili.

Um 6.400 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 910 vegna krabbameinslyfjagjafar. Komur á dagdeildir eru 2.781. Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað rúmlega 5.900 einstaklingar samanborið við 5.443 á sama tíma í fyrra og aukningin því umtalsverð. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 39 mínútur sem er rétt við það viðmið sem við setjum okkur.

Skurðaðgerðir í janúar-maí voru 1.144 og eru tæplega 33% aðgerða bráðaaðgerðir. Gerðar hafa verið 174 gerviliðaaðgerðir til þessa sem er aðeins færri en áætlað var sökum manneklu.

Fjöldi rannsókna fyrstu fjóra mánuði ársins voru rúmlega 94.000. Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 12.600 og gerir það að meðaltali um 83,6 rannsóknir á dag.  Á tímabilinu janúar til maí fæddust 162 börn samanborið við 177 börn á sama tíma í fyrra. Fjöldi ósjúkratryggðra hefur farið vaxandi frá áramótum en mikil aukning hefur verið í komum / innlögnum þessa hóps. Á tímabilinu hafa 30 ósjúkratryggðir einstaklingar legið inni á SAk samanborið við nítján í fyrra.