Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar - júní 2023

4. júlí 2023

Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir  sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali (PDF).  Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 15.394 og er meðaldvöl á deild 4,7 dagar. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru rúmlega 76% af heildarinnlögnum

Gömul mynd - Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk

Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir  sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali (PDF).  Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 15.394 og er meðaldvöl á deild 4,7 dagar. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru rúmlega 76% af heildarinnlögnum. Mikið álag hefur verið á legudeildunum og er rúmanýting á lyflækninga- og skurðlækningadeild 99,4% á tímabilinu.  Að meðaltali liggja 7,7 sjúklingar inni á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.  Í lok júní voru 13% rýma á lyflækninga- og skurðlækningadeild nýtt af þeim einstaklingum en töluverð aukning hefur verið undanfarna mánuði varðandi fjölda þeirra sem bíða eftir plássi á hjúkrunarheimili.

Um 7.130 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 1073 vegna krabbameinslyfjagjafar. Komur á dagdeildir eru 3.267. Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað tæplega 7.000 einstaklingar samanborið við 6.548 á sama tíma í fyrra. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 39 mínútur sem er rétt við það viðmið sem við setjum okkur.

Skurðaðgerðir í janúar-júní voru 1.297 og um 33% aðgerða bráðaaðgerðir. Gerðar hafa verið 183 gerviliðaaðgerðir til þessa.

Fjöldi rannsókna fyrstu fimm mánuði ársins voru tæplega 116.000. Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 20.300 og gerir það að meðaltali um 112 rannsóknir á dag.  Á tímabilinu janúar til maí fæddust 193 börn samanborið við 218 börn á sama tíma í fyrra. Fjöldi ósjúkratryggðra hefur farið vaxandi frá áramótum en mikil aukning hefur verið í komum / innlögnum þessa hóps. Á tímabilinu hafa 41 ósjúkratryggðir einstaklingar legið inni á SAk samanborið við 32 í fyrra.