Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar - júlí 2023

14. ágúst 2023

Nýjustu starfsemistölur frá forstjóra SAk. Mánaðarlega eru gefnar út starfsemistölur fyrir  sjúkrahúsið og má sjá ítarlegri upplýsingar í meðfylgjandi skjali.

Gömul mynd - Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk

Helstu starfsemistölur eru þær að fjöldi dvalardaga ofangreint tímabil eru 17.456, sem er um 9% meira en á sama tíma og í fyrra og er meðaldvöl á deild nú 4,7 dagar. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 78% af heildarinnlögnum. Mikið álag hefur verið á legudeildunum og er rúmanýting á lyflækningadeild 99,5% og á skurðlækningadeild 97,6% á tímabilinu. Einnig hefur verið mjög þungt á geðdeildinni á þessu ári og rúmanýting þar á tímabilinu 92,1% samanborið við 70% í fyrra. Í lok júlí biðu um um 13% inniliggjandi einstaklinga á bráðalegudeildum og Kristnesspítala eftir föstu plássi á Heilsuvernd hjúkrunarheimili á Akureyri. Aukið álag hefur verið á SAk eftir að rýmum fækkaði á Heilsuvernd og ekki hefur verið hægt að tryggja næga heimahjúkrun fyrir einstaklinga sem geta farið aftur heim.  

Um 7.550 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 1246 vegna krabbameinslyfjagjafar. Komur á dagdeildir eru 3.701.

Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað rúmlega 6.800 einstaklingar samanborið við 6145 á sama tíma í fyrra og því aukningin milli ára tæplega 10% yfir tímabilið. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 40 mínútur sem er rétt við það viðmið sem við setjum okkur.

Skurðaðgerðir í janúar-júlí voru tæplega 1.500 og er tæplega 36% aðgerða bráðaaðgerðir. Gerðar hafa verið 190 gerviliðaaðgerðir til þessa.

Fjöldi rannsókna á rannsóknastofum SAk voru um 164.000. Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var tæplega 23.500 og gerir það að meðaltali um 111 rannsóknir á dag sem er ívíð meira en í fyrra. 

Á tímabilinu janúar til júlí fæddust 230 börn samanborið við 254 börn á sama tíma í fyrra.

Mikil aukning hefur verið í komum ferðamanna og er rúmlega 50% aukning milli ára í komum ósjúkratryggðra á sjúkrahúsið. Að sama skapi fjölgar Innlögðum einstaklingum einnig en á þessu tímabili hafa 67 ósjúkratryggðir einstaklingar legið inni samanborið við 55 einstaklinga í fyrra.