Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkraliðanemar í HA fá þjálfun blóðtöku á SAk

13. apríl 2026

Nemendur Háskólans á Akureyri sem eru í fagnámi fyrir starfandi sjúkraliða hafa undanfarin tvö ár fengið þjálfun í að taka blóð á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Nemendur HA í þjálfun í blóðtöku á SAk

Nemendurnir eru ýmist í fagnámi með áherslu á öldrunar- og heimahjúkrun og hins vegar í samfélagsgeðhjúkrun. Háskólinn á Akureyri er fyrsti háskóli landsins sem býður upp á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða. Um er að ræða tveggja ára sveigjanlegt nám, sem skipulagt er með þeim hætti að nemendur geti sinnt starfi samhliða náminu.Fulltrúar SAk sjá um fræðslu og sýnikennslu í Háskólanum á Akureyri auk þess sem nemendur mæta á sjúkrahúsið, fylgjast með og læra – og taka blóðprufur hjá þeim einstaklingum sem samþykkja það.

„Það er gefandi og skemmtilegt að vera í samstarfi við nemendur HA bæði sjúkraliðanema sem og hjúkrunarfræðinema sem einnig koma til okkar í kennslu í blóðtöku.“ segir Guðný Björg Jensdóttir, sjúkraliði á rannsóknardeild SAk.