Fara beint í efnið

Sjúkraflutningaskólinn útskrifar 229 nemendur

25. júní 2024

Útskrift Sjúkraflutningaskólans var haldin á Flugsafni Íslands á Akureyri föstudaginn 31. maí sl.

Útskrift sjúkraflutningaskólans

Útskrifaðir voru 229 nemendur eftir skólaárið 2023-2024.

  • Þar af eru 97 að útskrifast með grunnréttindi sem sjúkraflutningamenn, EMT, eftir 260 klst nám.

  • 12 útskrifast með framhaldsmenntun í sjúkraflutningum, AEMT, eftir 413 klst nám.

  • 120 vettvangsliðar EMR, eftir 42 klst nám.

Auk þeirra námskeiða sem að áður greinir sinnir skólinn endurmenntunarnámskeiðum fyrir heilbrigðisstarfsfólk auk þess sem við bjóðum upp á endurlífgunarnámskeið frá Evrópska Endurlífgunarráðinu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sinnum Heilbrigðisstofnunum víða um land með ný- og símenntun sjúkraflutningamanna, hjúkrunarfræðinga og lækna. Frá síðustu útskrift hefur skólinn haldið 8 endurmenntunarnámskeið með samtals 87 nemendum.

Námskeið Sjúkraflutningaskólans eru haldin um allt land en grunn og framhaldsnámskeið voru kennd á Akureyri, Selfossi, Fáskrúðsfirði, Reykjavík og Sandgerði.

Ávarp skólastjóra.