Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Sittu minna – hreyfðu þig meira!

8. september 2026

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er haldinn 8. september ár hvert. Dagurinn er tileinkaður starfi sjúkraþjálfara og því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í heilsueflingu, forvörnum, meðferð og endurhæfingu.

Þema dagsins í ár er hjarta- og æðasjúkdómar og heilaslag. Athygli er meðal annars vakin á mikilvægi hreyfingar í forvörnum og endurhæfingu undir yfirskriftinni: Sittu minna – hreyfðu þig meira!

Regluleg hreyfing skiptir máli á öllum æviskeiðum. Sjúkraþjálfarar styðja fólk við að auka hreyfingu á öruggan hátt, bæta færni og hreyfigetu og ná aftur auknu sjálfstæði eftir veikindi eða áföll.

Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar færum við sjúkraþjálfurum bestu þakkir fyrir þeirra mikilvæga og fjölbreytta starf í þágu sjúklinga.