Sérnámsstöður lækna – Samræmt ráðningarferli fyrir stöður í febrúar 2026
25. september 2025
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður lækna innan þeirra greina lækninga þar sem viðurkennt sérnám fer fram á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og samstarfsaðilum. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Upphafsdagur er 23. febrúar 2026, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Móttökudagur sérnáms verður haldinn 26. febrúar 2026 og er skyldumæting á hann. Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið.
Sérnám fer að mestu leyti fram á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðrir samstarfsaðilar eru Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Reykjalundur. Ef samvinna hefur verið staðfest milli LSH og samstarfsaðila í viðkomandi sérgrein er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum. Það sérnám sem hér er auglýst eru sérnámsleiðir viðkomandi greina á Íslandi sem samþykktar hafa verið af mats- og hæfnisnefnd í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám samræmist viðurkenndri marklýsingu viðkomandi greinar og fylgir mats- og handleiðslukerfi þjálfaðra handleiðara.
Doktorsnám er mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að lágmarki væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi. Samþykkt rannsóknaráætlun doktorsnáms skal fylgja með umsókn.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði
Umsóknir um sérnámið eru hér, athugið að ef umsækjandi ætlar að sækja um fleiri en eina sérgrein þarf að sækja um hverja og eina í aðskildri umsókn.
Sérnámsstöður í barnalækningum
Sérnámsstöður í barna- og unglingagerðlækningum
Sérnámsstöður í bráðalækningum
Sérnámsstöður í bæklunarskurðlækningum
Sérnámsstöður í endurhæfingarlækningum
Sérnámsstöður í geðlækningum
Sérnámsstöður kjarnanám í skurðlækningum
Sérnámsstöður í lyflækningum, fyrra stig (MRCP)