Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Sérnámshjúkrunarfræðingar í geðhjúkrun í vettvangsheimsókn á SAk

5. nóvember 2026

Sérnámshjúkrunarfræðingar í geðhjúkrun komu í vettvangsheimsókn á SAk síðastliðinn miðvikudag þar sem nemendur fengu kynningu á starfsemi geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri ásamt því að fara í heimsókn í Grófina geðverndarmiðstöð og Lautina sem er athvarf fyrir geðfatlaða.

Meistaranámið í geðhjúkrun er kennt samkvæmt samningi milli Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri en nemendur útskrifast með sameiginlega gráðu frá báðum háskólum. Einn af þáttum í námsfyrirkomulagi er að nemendur eru í launuðu sérnámi/klínískri starfsþjálfun á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Á myndinni má sjá sérnámshjúkrunarfræðinga ásamt Snæbirni Ómar Guðjónssyni sérfræðingi í geðhjúkrun, Gísla Kort Kristóferssyni sérfræðingi í geðhjúkrun/prófessor í geðhjúkrun við Háskólann á Akureyri ásamt Guðrúnu Ásbjörgu Stefánsdóttur, aðstoðardeildarstjóra göngudeildar geðdeildar, sem lauk umræddu námi árið 2026.

Í námslotu sem var í Háskólanum á Akureyri í síðustu viku voru sérnámshjúkrunarfræðingar meðal annars í tveggja daga færnibúðum með stöðluðum skjólstæðingum þar sem fór fram þjálfun í viðtalstækni, heildrænu mati og greiningu geðsjúkdóma.