Samstarfssamningur vegna krabbameinslækninga
10. apríl 2026
Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítalinn hafa gert með sér samstarfssamning vegna krabbameinslækninga á SAk.

Fjögurra manna teymi lækna Landspítala mun sinna krabbameinslækningum á SAk og skiptast læknarnir á þriggja daga viðveru á Akureyri. Teymið samanstendur af tveimur læknum sem starfað hafa á SAk um nokkurra ára skeið, þeim Signýju Völu Sveinsdóttur blóðlækni og Örvari Gunnarssyni krabbameinslækni. Þá bætast við í teymið tveir nýir krabbameinslæknar, þær Þóra Rún Úlfarsdóttir og Ólöf Kristjana Bjarnadóttir.
„Við erum mjög ánægð með að hafa gengið frá þessum samningi og tryggt áframhaldandi þjónustu krabbameins- og blóðlækna. Við hlökkum til samstarfsins og að sjá þjónustuna eflast og þróast enn frekar,“ segir Guðni Arnar Guðnason, starfandi forstöðulæknir lyflækninga.