Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Samningsundirskrift og skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

18. júní 2026

Í dag undirrituðu heilbrigðisráðherra, Alma Möller og Guðmundur Viðar Gunnarsson og Hjalti Steinþórsson frá GV- Gröfum verksamning við Nýjan Landspítala ohf. um jarðvinnu vegna byggingar nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri. Samninginn vottuðu Guðjón Hauksson, forstjóri SAk og Sigríður Inga Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá SAk.

Jóhannes G. Bjarnason, Guðmunda Birna Kristjánsdóttir, Gunnar Svavarsson, Alma Möller, Guðjón Hauksson, Valdís Eyja Pálsdóttir, Árni Jóhannesson

Að undirritun lokinni tók Alma Möller skóflustungu ásamt Jóhannesi G. Bjarnasyni, formanni Hollvinasamtaka SAk, Guðmundu Birnu Kristjánsdóttur, sjúkraliða SAk, Gunnari Svavarssyni, framkvæmdastjóra NLSH, Guðjóni Haukssyni, forstjóra SAk, Valdísi Eyju Pálsdóttur, formanni Geðverndarfélags Akureyrar og Árna Jóhannessyni, lækni SAk.

Legudeildarbyggingin mun verða 13.600 m² en í nýbyggingunni, sem tengist núverandi húsnæði, verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild (36 stofur), lyflækningadeild (36 stofur) og geðdeild (12 sjúkrastofur og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu) ásamt stoðrýmum og þá verður til staðar glæsileg nútíma dag- og göngudeild geðdeildar. Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði staðsett sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk og tengd núverandi húsnæði. Minniháttar breytingar verða gerðar á núverandi húsnæði vegna tengingar við nýbyggingu og breytinga á vörumóttöku. Nýbyggingin mun taka yfir núverandi bílastæði á lóðinni og þarf að færa þau bílastæði til ásamt því að fjölga bílastæðum miðað við aukið byggingarmagn á lóðinni.

Sérstakt gleðiefni

Alma Möller, heilbrigðisráðherra segir það sérstakt gleðiefni að sjá þetta langþráða verkefni verða að veruleika: „Hér er ekki aðeins um að ræða fyrstu skóflustunguna að nýrri byggingu heldur er um að ræða mikilvægt skref í átt að öflugri og nútímalegri heilbrigðisþjónustu fyrir landsmenn og sérstakt ánægjuefni að sjá þá áherslu sem lögð er á bætta aðstöðu fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Ný viðbygging við Sjúkrahúsið á Akureyri mun bæta aðstöðu sjúklinga, styrkja starfsskilyrði starfsfólks og efla hlutverk sjúkrahússins sem lykilstoðar í heilbrigðiskerfi landsins. Þessi nýja bygging endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar á uppbyggingu innviða um allt land og fjárfestingu í betra heilbrigðiskerfi.“

Brýn þörf og mörg tækifæri

Guðjón Hauksson, forstjóri SAk sagði að þessu tilefni: „Ég vil, af heilum hug, þakka öllu því fólki sem hefur í gegnum tíðina lagt sitt lóð á vogarskálarnar við að þetta verkefni sé nú að verða að veruleika. Ekki aðeins er þörfin brýn, heldur eru tækifærin sem felast í nýbyggingunni óendanlega mörg – það er sannarlega heilmikið tilhlökkunarefni að fá tækifæri til að vera þátttakandi í að nýta þau. Ég hef fulla trú á því að nýbyggingin muni nýtast vel í starfsemi sjúkrahússins, bæta starfsaðstæður til muna – en fyrst og fremst gefur nýbyggingin okkur kost á því að sinna enn betur okkar meginhlutverki sem er að veita fólki sem á því þarf að halda framúrskarandi heilbrigðisþjónustu.“

Verðugt verkefni

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf, segir að stækkun Sjúkrahússins á Akureyri muni verða verðugt verkefni, líkt og öll önnur framkvæmdaverkefni félagsins: „Stækkun Sjúkrahússins á Akureyri mun verða NLSH verðugt verkefni, líkt og öll önnur framkvæmdaverkefni félagsins. Nú þegar hönnun er langt komin og jarðvinna er hafin þá endurspeglar það þá framkvæmdavissu sem er fyrir hendi. Umhverfis- og öryggismálin eru alltaf mikilvægur þáttur, erfitt er að reisa byggingu í nálægð við starfandi spítala en um leið þarf að tryggja gott samráð og samstarf við íbúa í grenndinni. Samvinna SAk og NLSH mun áfram verða góð og gefandi báðum aðilum styrk á byggingartímanum framundan“.