Samningar um mönnun
19. janúar 2024
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur gengið frá samningi við Heilsuvernd um að annast afleysingu og mönnun eins læknis á bráðamóttöku SAk um helgar og á skilgreindum tíma eina til tvær helgar í mánuði. Samningurinn hefur nú þegar tekið gildi.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1BqM546UOkb6JQktz1rCMM/72c11d1154e7352a839624cbf506b00f/_6302KY4_-_Copy.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![Loftmynd af SAk](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1BqM546UOkb6JQktz1rCMM/72c11d1154e7352a839624cbf506b00f/_6302KY4_-_Copy.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Stefnt er að föstum hópi reyndra lækna, sérfræðinga í heimilislækningum eða sérnámi til heimilislækninga sem koma reglubundið til afleysinga á SAk frá Heilsuvernd. Þá er gert ráð fyrir að efla enn frekar mönnun sérfræðilækna á bráðamóttöku á næstu misserum.
Einnig hefur verið gengið frá samningi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um þjónustu sérfræðinga í geðlækningum 1-2 vikur í mánuði. Auk þess hefur sérfræðingur í geðlækningum verið ráðinn í hlutastarf og hefur hann nú þegar hafið störf.