SAk stenst alþjóðlegar kröfur í nýlegri DNV-úttekt
28. apríl 2025
Dagana 11. til 14. febrúar fór fram ítarleg ytri úttekt á allri starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), svokölluð DNV-úttekt. Um var að ræða heildarúttekt, sem framkvæmd er á þriggja ára fresti, en á milli þeirra fara fram minni úttektir sem einblína á tiltekna þætti starfseminnar.

Dagana 11. til 14. febrúar fór fram ítarleg ytri úttekt á allri starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), svokölluð DNV-úttekt. Um var að ræða heildarúttekt, sem framkvæmd er á þriggja ára fresti, en á milli þeirra fara fram minni úttektir sem einblína á tiltekna þætti starfseminnar. SAk stenst staðlana með sóma Hvers vegna ytri úttektir?Margir velta því fyrir sér hvers vegna SAk velji þá leið að fá ytri aðila til að taka út starfsemi sína. Svarið er einfalt: Markmið gæðastarfsins er að auka öryggi sjúklinga og starfsmanna. Innri úttektir, ytri úttektir eins og DNV-úttektin, ásamt rýni á atvikum og alvarlegum atvikum, mynda saman mikilvæga samfellu í gæðastarfi SAk. Þessi samfella gerir sjúkrahúsinu kleift að greina og lagfæra kerfisvillur og aðra áhættuþætti sem annars gætu farið fram hjá okkur í daglegum störfum. Þannig tryggjum við stöðuga framþróun og bætt öryggi allra sem að starfseminni koma. |