SAk hlýtur bronsdekkið fyrir orkuskipti í bílaflotanum
5. nóvember 2026
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið bronsdekkið, viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum í bílaflota ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja. Hlutfall orkuskipta hjá SAk er nú 43,8% samkvæmt viðmiðum verkefnisins.

Fulltrúar rekstrardeildar með viðurkenninguna
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið bronsdekkið, viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum í bílaflota ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja. Hlutfall orkuskipta hjá SAk er nú 43,8% samkvæmt viðmiðum verkefnisins.
Í bílaflota sjúkrahússins eru átta bifreiðar: þrír rafmagnsbílar, einn tengiltvinnbíll og fjórir bílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. -
Umhverfis- og orkustofnun heldur utan um eftirfylgni orkuskipta í bílaflota ríkisins og veitir viðurkenningar eftir því hversu langt stofnanir og fyrirtæki hafa náð. Bronsdekk fæst við 30% hlutfall orkuskipta, silfurdekk við 60%, gulldekk við 90% og platínudekk þegar orkuskiptum er að fullu lokið.
Samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er stefnt að því að ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki ljúki orkuskiptum í fólks- og sendibifreiðaflota sínum fyrir árslok 2029. Markmiðið nær einnig til aðkeyptrar samgönguþjónustu, svo sem leigu- og bílaleigubíla.
Bronsdekkið er ánægjuleg staðfesting á þeim árangri sem þegar hefur náðst hjá SAk og hvatning til áframhaldandi orkuskipta.