Ráðið í stöðu yfirlæknis svæfinga- og gjörgæslulækninga
5. janúar 2024
Corina Labitzke og Chris Wolffensperger hafa í sameiningu tekið við af Oddi Ólafssyni í stöðu yfirlæknis svæfinga- og gjörgæslulækninga.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3NHuWuSwkCLMlp7MD0QJpz/edda3eb64df9cc9d2cbf4b7a7a9fc36a/SAk.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Nýráðning Corinu og Chris](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3NHuWuSwkCLMlp7MD0QJpz/edda3eb64df9cc9d2cbf4b7a7a9fc36a/SAk.png?w=774&fm=webp&q=80)
Corina og Chris eru Sjúkrahúsinu á Akureyri vel kunn enda hafa þau starfað hér síðustu ár, Corina síðan 2018 og Chris síðan 2015. Þau munu vinna sem teymi og veita svæfinga- og gjörgæslulækningum forstöðu í samvinnu við deildarstjóra gjörgæsludeildar og deildarstjóra svæfingadeildar sem og annað starfsfólk.
Fyrstu vikurnar í starfi munu Corina og Chris taka við keflinu af Oddi Ólafssyni fráfarandi forstöðulækni (yfirlækni) sem áfram mun starfa við deildina.