Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Opnun tilboða vegna fyrsta áfanga nýbyggingar

4. maí 2026

Í síðustu viku voru opnuð tilboð í útboði vegna fyrsta áfanga við nýbyggingu SAk sem felur í sér jarðvinnu götur, veitur og bílastæði.

Tilboðin voru svo hljóðandi:

Nafn bjóðenda

Tilboð án vsk.

Hlutfall af kostnaðaráætlun

G.V Gröfur ehf.

391.560.000 kr.

57%

Nesbræður

424.301.537 kr.

62%

Kostnaðaráætlun, án vsk. 682.681.851

Verkið er fyrsti áfangi verkframkvæmda við SAk vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði. Við þessa stækkun þarf að gera ný bílastæði og endurnýja veitukerfi á lóðinni milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.

„Það er virkilega gleðilegt að tvö tilboð hafi borist í þetta fyrsta útboð vegna nýbyggingar SAk. Þetta er sannarlega langþráð verkefni og mikilvægt fyrir okkur að sjá fram á að framkvæmdir séu að fara í gang,“ segir Gunnar Líndal, verkefnastjóri á SAk.

Frétt NLSH: Opnun tilboða: Sjúkrahúsið á Akureyri – jarðvinna, götur, veitur og bílastæði | Nýr Landspítali