Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Ólína Einarsdóttir ráðin taugalæknir

7. september 2026

Ólína Einarsdóttir hefur hafið störf sem sérfræðingur í taugalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Ólína lauk læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. Á námsárunum starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akureyri og að námi loknu einnig á heilsugæslunni á Dalvík og á Hlíð. 

Síðar flutti Ólína til Svíþjóðar og hóf sérnám í taugalækningum í Helsingborg. Frá ársbyrjun 2024 hefur hún starfað þar sem sérfræðingur í taugalækningum, bæði við deildarstörf og á göngudeild. Hún hefur sérstakan áhuga á MS og tók meðal annars þátt í uppbyggingu MS-teymis og göngudeildar í Helsingborg árið 2023. 

„Ég hlakka mikið til að hefja störf á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Það er spennandi að fá tækifæri til að byggja upp taugagöngudeild og efla taugalækningaþjónustu á Norðurlandi, ásamt því að taka þátt í starfinu á sjúkrahúsinu. Ég hlakka sérstaklega til samstarfsins við starfsfólkið og til að byggja upp góða þjónustu til framtíðar,“ segir Ólína. 

Við bjóðum Ólínu hjartanlega velkomna á SAk.