Nýjar rannsóknir styrkja heilbrigðisþjónustu á Akureyri
9. maí 2025
Frá áramótum hefur Rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) innleitt fjölmargar nýjar lífefnarannsóknir sem framkalla hraðari og nákvæmari greiningar fyrir sjúklinga á Norðurlandi.

Frá áramótum hefur Rannsóknadeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) innleitt fjölmargar nýjar lífefnarannsóknir sem framkalla hraðari og nákvæmari greiningar fyrir sjúklinga á Norðurlandi. Rannsóknirnar eru framkvæmdar á nýju og fullkomnu CobasPro-tæki og fela í sér bæði blóð-, þvag- og mænuvökvarannsóknir. Þær rannsóknir sem hafa verið teknar í notkun á þessu ári eru:
S-Insúlín –mæling á insúlíni í blóði, mikilvæg við greiningu og eftirfylgd sykursýki.
S-Lípasi – ensím sem hjálpar við að greina brisbólgu og aðra meltingarsjúkdóma.
Þvagrannsóknir – ýmsar mælingar á efnainnihaldi þvags, sem gefa upplýsingar um nýrnastarfsemi og vökvajafnvægi. Þ-Fosfat, Þ-Urea, Þ-Magnesíum og Þ-Kalsíum – mikilvægar mælingar til að meta efnaskipti, nýrnastarfsemi og jafnvægi steinefna í líkamanum.
Mænuvökvarannsóknir:
M-IgG – mæling á mótefnum í mænuvökva, m.a. notað við greiningu á sjúkdómum eins og MS (Multiple Sclerosis).
M-Albumin – próteinmæling sem getur gefið vísbendingar um virkni blóð-heila þröskulds og ýmsa taugasjúkdóma.
Að sögn starfsfólks rannsóknadeildar hefur mikill metnaður verið lagður í að innleiða þessar rannsóknir með hágæða vinnuferlum og viðurkenndum mæliaðferðum. Markmiðið er að tryggja fyrsta flokks greiningarþjónustu fyrir sjúklinga sem sækja þjónustu til SAk. „Að hafa þessar rannsóknir í boði hér á Akureyri skiptir gríðarlegu máli,“ segir Agnes Heiða Skúladóttir tölvulífeindafræðingur á rannsóknardeild SAk.
Inga Stella Pétursdóttir, deildarstjóri rannsóknardeildar tekur í sama streng og bætir við „Við getum nú veitt hraðari svör og betri þjónustu, án þess að þurfa að senda sýni suður. Þetta styrkir sjálfstæði sjúkrahússins og bætir meðferðarsvörun.“
Innleiðing rannsóknanna hefur jafnframt sparað tíma og kostnað, auk þess sem hún dregur úr álagi á stærri rannsóknarstofur á höfuðborgarsvæðinu. Með þessum breytingum eflist einnig sérhæfing og fagþekking á staðnum, sem er lykilatriði fyrir öfluga heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Nýju rannsóknirnar eru skref í áframhaldandi þróun á rannsóknastarfi SAk, og starfsfólkið er opið fyrir nýjungum sem styðja við nútímalega, örugga og aðgengilega heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn.