Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Nýbirt grein - Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni

13. ágúst 2024

Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að 36% eldra fólks í sjálfstæðri búsetu sem fékk heimahjúkrun á Akureyri höfðu ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu.

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Á dögunum birtist ný grein í Tímariti hjúkrunarfræðinga (sjá hér á bls. 72: Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2.tbl 2024 by Tímarit hjúkrunarfræðinga - Issuu).

Höfundar eru: Sandra Ásgrímsdóttir, Laufey Hrólfsdóttir, Berglind Soffía Blöndal og Árún Kristín Sigurðardóttir.

Verkefnið var hluti af meistaraverkefni Söndru og var Laufey Hrólfsdóttir aðalleiðbeinandi hennar.

Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að 36% eldra fólks í sjálfstæðri búsetu sem fékk heimahjúkrun á Akureyri höfðu ákveðnar eða sterkar á vannæringu. Vannæring hefur áhrif á líkamlega og andlega heilsu, vannærðir einstaklingar lifa skemur, fá frekar sýkingar og þola og svara verr meðferð. Sjúkrahúslegur eru t.d. lengri og endurinnlagnir mun algengari hjá þessum hóp miðað við vel nærða skjólstæðinga.

Hvernig má hagnýta niðurstöður rannsóknarinnar í hjúkrun eða íslenskri heilbrigðisþjónustu?

Tryggja þarf að eldra fólk sé skimað fyrir áhættu á vannæringu í samræmi við klínískar leiðbeiningar ásamt því að efla samvinnu milli sjúkrastofnana og næringarfræðinga með eftirfylgni eftir útskrift.

Hvaða þekkingu bæta niðurstöður þessarar rannsóknar við hjúkrunarfræði?

Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að eldra fólk með LÞS ≥ 30 glímir ekki síður við vannæringu eða er í áhættu á vannæringu. Því er mikilvægt að skima alla skjólstæðinga, óháð holdafari.

Hver geta áhrif rannsóknarinnar orðið á störf hjúkrunarfræðinga?

Hjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til að skima eldra fólk fyrir áhættu á vannæringu og vísa áfram í þverfagleg úrræði.