Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Ný móttaka við D-inngang

29. ágúst 2024

Skjólstæðingar boðaðir í móttöku D á 0. hæð við D-inngang.

Móttaka D

Ný móttaka hefur verið opnuð á 0. hæð við D-inngang – áður kallað K1. Móttakan er ætluð skjólstæðingum dag- og göngudeildar lyflækninga svo og þeirra sem leita til næringarfræðings og sérfræði lækna- og hjúkrunarfræðinga.

Breytingarnar eru hluti af endurbótum þjónustu almennu göngudeildarinnar sem leggst af að nafninu til en skiptist eins og hér segir:

Dagdeild lyflækninga - stjórnandi: Inga Margrét Skúladóttir

  • Móttaka dagsjúklinga

  • Speglun

  • Bráðadeild lyflækninga (í þróun)

Göngudeild lyflækninga- stjórnandi: Þórdís Rósa Sigurðardóttir

  • Sérfræðimóttökur lyflækna

  • Sérhæfðar hjúkrunarmóttökur

  • Heimahlynning og líknarmiðstöð

Dag- og göngudeild skurðlækninga – stjórnandi: Þórgunnur Birgisdóttir

  • Sáramóttaka

  • Smáaðgerðastofa

  • Brotaendurkomur og starfsemi sem fylgt hefur göngudeild á bráðamóttöku („sveitin")

  • Sérfræðimóttökur skurðlækna

Starfsemi dag- og göngudeildar skurðlækninga verður á gangi inn af biðstofu bráðamóttöku (inngangur C) að undanskildri smáaðgerðarstofu sem verður áfram á 1. hæð dag- og göngudeildar lyflækninga.

Inngangar SAk með lýsingu