Fara beint í efnið

Niðurstaða hönnunarútboðs á stækkun SAk - Hópur Verkís með hæstu einkunn

10. maí 2024

Nýr Landspítali (NLSH) hefur birt niðurstöðu í hönnunarútboði I2081 vegna nýs húsnæðis fyrir legudeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Hanna á nýbyggingu fyrir legudeildir í skurð- og lyflækningadeild og dag-, göngu- og legudeild fyrir geðdeild við núverandi húsnæði Sak. Gert er ráð fyrir að um 9.200 m2 nýbygging verði staðsett sunnan við núverandi byggingar og tengd eldra húsnæði.

Tillaga Verkís hópsins að viðbyggingu SAk

Haldið var forval í lok sl. árs og komust fimm hönnunarteymi áfram. Valmódel lokaða útboðsins var tvískipt. Gæði tillögu gilti 60% og tilboðsverð hönnunarteymis 40% af heildareinkunn sbr. reglur útboðsins. Skipuð matsnefnd fór yfir gæðahlutann en í henni voru Kristján Þór Júlíusson sem var formaður, Ásthildur Sturludóttir, Helgi Davíð Ingason, Hildigunnur Svavarsdóttir og Lilja Stefánsdóttir. Áætlun NLSH um hönnunarkostnað var 779,5 m.kr. án vsk.

Hæsta heildarskor úr báðum matshlutum, 92,99, stig hlaut hópur Verkís en ásamt Verkís eru þar TBL arkitektar, JCA Ltd. og Brekke & Strand. Hópurinn er með kostnaðartilboð sem nemur 753,5 m.kr. eða 97% af kostnaðaráætlun.

Heildarniðurstaðan varð þessi:

Verkís

92,99 stig

753,5 m.kr.

Mannvit

92,18 stig

668,7 m.kr.

Tröð

76,27 stig

685,5 m.kr.

Efla

75,00 stig

621,6 m.kr.

Nordic

65,83 stig

806,3 m.kr.

NLSH hefur kynnt bjóðendum niðurstöðuna og verkefnið verður nú unnið áfram í samræmi við lög nr. 120/2016 um opinber innkaup og lög nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir geti hafist með jarðvinnu árið 2025.

Nú í maí verða opnuð útboð á vegum NLSH í verklegar framkvæmdir á Húsi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands við Hringbraut og stækkunar endurhæfingardeildar Landspítala við Grensás.