Nemendur í svæfingahjúkrun í þriggja daga námslotu á SAk
27. október 2026
Fimmtán nemendur í framhaldsnámi í svæfingahjúkrun við Háskóla Íslands sóttu nýverið þriggja daga námslotu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Námslotan er hluti af námskeiðinu Eðlis- og efnafræði svæfinga, þar sem nemendur tengja fræðin við búnað og tæknikerfi sjúkrahússins.

Námslotan er hluti af námskeiðinu Eðlis- og efnafræði svæfinga, þar sem nemendur tengja fræðin við búnað og tæknikerfi sjúkrahússins.
Fljótandi súrefni og fljótandi rafmagn
Björn Gunnarsson, sérfræðingur á gæðadeild SAk, annast kennsluna ásamt samstarfsfólki, en nemendur kynnast meðal annars lögnum og rafkerfi sjúkrahússins. „Margir vita að fyrir utan sjúkrahúsið stendur stór tankur með fljótandi súrefni, en færri vita að súrefnið er geymt við afar lágt hitastig, um −160 °C við um tíu loftþyngda þrýsting. Með því að geyma súrefni á fljótandi formi er hægt að geyma mikið magn þess í tiltölulega litlu rými,“ segir Björn.
Á skurðstofum er síðan notað svokallað fljótandi rafmagn, sem er allt annars eðlis. „Þar er átt við einangrað rafkerfi sem byggir á sérstökum einangrunarspenni. Kerfið dregur verulega úr hættu á raflosti við fyrstu einangrunarbilun og gerir jafnframt kleift að halda mikilvægum rafbúnaði í gangi þótt slík bilun komi upp,“ útskýrir Björn.
Námslotan veitir m.a. með þessum hætti innsýn í tæknina á bak við daglegt starf á sjúkrahúsinu. „Það er mjög mikilvægt fyrir SAk að taka á móti nemendum í framhaldsnámi og gefa þeim tækifæri til að kynnast starfseminni. Slíkar námslotur efla kennsluhlutverk sjúkrahússins og styrkja mikilvægt samstarf okkar við Háskóla Íslands,“ segir Laufey Hrólfsdóttir, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar á SAk.