Námskeið í gjörgæsluhjúkrun haldið í fyrsta sinn á SAk
15. apríl 2026
Dagana 26.–27. mars fór fram tveggja daga námskeið í grunnatriðum gjörgæsluhjúkrunar, Basic for nurses, á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk).

Um er að ræða alþjóðlegt námskeið sem er hluti af svokallaðri Basic-línu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og hefur verið kennt víða um heim.
Námskeiðið hefur verið fastur liður í aðlögun hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild Landspítala síðastliðin tíu ár, en þetta er í fyrsta sinn sem það er haldið á SAk.
Tveir sérfræðingar í gjörgæsluhjúkrun, þau Guðrún Jónsdóttir og Þorsteinn Jónsson, komu frá Landspítala til að kenna námskeiðið. Helga Dögg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild SAk, hafði umsjón með skipulagningu þess og tók jafnframt þátt í kennslu.
„Það er virkilega jákvætt að geta staðið fyrir námskeiði sem þessu á SAk,“ segir Helga Dögg. „Stöðluð kennsla sem þessi er mikilvægur liður í því að styðja við og efla þá sérhæfðu hjúkrun sem á sér stað á gjörgæsludeild.“
Alls sóttu tíu hjúkrunarfræðingar sem nýlega hafa hafið störf á gjörgæsludeild SAk námskeiðið, auk eins hjúkrunarfræðings frá gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Kennslan var bæði bókleg og verkleg og lauk námskeiðinu með prófi.
Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem lögð var fyrir þátttakendur í lok námskeiðsins þótti það bæði gagnlegt og skemmtilegt.
„Með tilkomu námskeiðsins á SAk skapast ný tækifæri til að efla faglega þekkingu og styðja við markvissa aðlögun nýrra hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild, sem er lykilþáttur í að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar,“ segir Helga Dögg enn fremur.