Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Mikilvægt að auka vitund um persónuvernd og rétt einstaklinga til friðhelgi einkalífs

28. janúar 2026

28. janúar er alþjóðlegi persónuverndardagurinn, dagurinn sem er tileinkaður að auka vitund um persónuvernd og rétt einstaklinga til friðhelgi einkalífs. Af því tilefni er tækifæri til að minna á þetta mikilvæga svið sem viðkemur okkur öllum.

Kristína Björk - Persónuvernd

Af hverju persónuvernd?

Persónuvernd er í grunninn að vernda grundvallarréttindi okkar, þ.e. friðhelgi einkalífsins sem eru tryggð bæði í mannréttindasáttmála Evrópu sem og stjórnarskránni.

Markmiðið með persónuverndarlögunum er að stuðla að því að farið sé með persónuupplýsingar í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur persónuverndar og tryggja áreiðanleika og gæði persónuupplýsinga sem unnið er með.

Af hverju persónuverndarfulltrúi?

Með gildistöku nýju persónuverndarlaganna var gerð krafa um að vissar stofnanir og fyrirtæki þyrftu að ráða til sín persónuverndarfulltrúa. Þar undir falla allar heilbrigðisstofnanir vegna eðlis þeirra upplýsinga sem þar er unnið með.

Persónuverndarfulltrúi hefur það meginhlutverk að tryggja að heilbrigðisstofnun uppfylli allar kröfur persónuverndarlöggjafarinnar.

Helstu verkefni persónuverndarfulltrúa eru að sinna eftirliti, fræðslu, ráðgjafar- og samráðshlutverki á þessu sviði.

En hvað felst í því?

Löggjöfin gerir ráð fyrir innbyggðri og sjálfgefinni persónuvernd, sem þýðir að allir verkferlar, stefnur og gæðaskjöl sem fela í sér einhvers konar vinnslu persónuupplýsinga þurfa að vera í samræmi við persónuverndarlögin sem og önnur tilfallandi lög. Það er því eitt af hlutverkum persónuverndarfulltrúa að hafa eftirlit með því og veita ráðgjöf og benda á ef verkferlar til dæmis uppfylla ekki kröfur löggjafarinnar.

Persónuvernd innan SAk

Innan sjúkrahússins er unnið með umfangsmikið af viðkvæmum persónuupplýsingum á hverjum degi. Þungamiðja persónuverndar innan sjúkrahússins snýr því að því að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga innan sjúkrahússins samrýmist kröfum persónuverndarlaga og þannig tryggja öryggi upplýsinganna en á sama tíma eflum við traust sjúklinga gagnvart stofnunni. Mikilvægt er að verkferlar og gæðaskjöl sem fela í sér vinnslu persónuupplýsinga séu í samræmi við löggjöfina og að starfsmenn kynni sér vel það verklag og fylgi því eftir til að stuðla að öryggi persónuupplýsinga. Við erum öll almannavarnir, við erum öll persónuvernd.