Miðpunktur stofnaður á málþingi um sjálfsvígsrannsóknir á Akureyri
9. nóvember 2026
Sex stofnanir sameina krafta sína um rannsóknir á sjálfsvígum með stofnun Miðpunkts. Samstarfssamningur verður undirritaður á málþingi í Háskólanum á Akureyri mánudaginn 23. nóvember. Málþingið fer fram í stofu M102 frá kl. 9 til 15 og verður einnig streymt.

Að Miðpunkti standa Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, embætti landlæknis, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri. Markmið samstarfsins er að efla rannsóknir og samstarf á sviði sjálfsvígsfræða og miðla gagnreyndri þekkingu til fræðasamfélagsins, stjórnvalda og annarra sem málið varðar.
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, setur málþingið og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra flytur ávarp.
Á málþinginu fjalla fræðafólk og fagfólk meðal annars um áhættuþætti sjálfsvíga og þróun þeirra, reynslu ungra karlmanna sem lifað hafa af sjálfsvígstilraun og tengsl félagslegs stuðnings við sjálfsvígshegðun. Einnig verður fjallað um mat á sjálfsvígshættu á bráðamóttöku og forvarnarverkefni á borð við Gulan september og Headspace. Málþinginu lýkur með umræðum um næstu skref.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin
Málþingið er öllum opið og á sérstaklega erindi við þau sem starfa að geðheilbrigðismálum og sjálfsvígsforvörnum hjá félagasamtökum, í heilbrigðisþjónustu, hjá sveitarfélögum eða við rannsóknir. Aðgangur er ókeypis. Gestir eru beðnir um að skrá sig fyrir fram þar sem boðið verður upp á málþingsgögn, kaffiveitingar og hádegismat.
Skráning á málþingið
Dagskrá og nánari upplýsingar
Ef þú eða einhver þér nákominn þarft á stuðningi að halda er Hjálparsími Rauða krossins 1717 opinn allan sólarhringinn. Einnig er hægt að fá stuðning í netspjalli á https://www.1717.is allan sólarhringinn.