Lungnalæknir ráðinn til starfa
26. janúar 2026
Magdalena Ásgeirsdóttir, lungnalæknir hefur störf við Sjúkrahúsið á Akureyri í febrúar í 30% stöðu.

Magdalena Ásgeirsdóttir, lungnalæknir
Magdalena lauk embættisprófi í læknisfræði 1993 frá læknadeild Háskóla Íslands og Diploma in Tropical Medicine and Hygiene frá London School of Hygiene and Tropical Medicine 1998. Hún stundaði sérfræðinám á Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg og lauk þaðan sérfræðinámi í lungnalækningum 2005.
Magdalena starfaði á Reykjalundi árabilið 2006-2021 ásamt því að stunda nám í endurhæfingarlækningum og hlaut sérfræðiviðurkenningu sem endurhæfingarlæknir 2019. Hún hóf störf á Grensásdeild Landspítala í janúar 2022, fyrst sem sérfræðilæknir og yfirlæknir frá 1. nóvember 2023. Við bjóðum Magdalenu hjartanlega velkomna til starfa.