Komdu norður – fjölbreytt tækifæri fyrir námslækna á SAk
25. september 2026
Fulltrúar Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) tóku nýverið þátt í kynningu fyrir verðandi sérnámsgrunnslækna á Landspítala. Þar kynnti hópur frá SAk sjúkrahúsið, náms- og starfstækifæri, kaup og kjör og þau fjölmörgu tækifæri sem standa ungum læknum til boða á Akureyri.

Að lokinni kynningu á Landspítala var viðburðurinn Komdu norður haldinn, en mennta- og vísindadeild SAk skipuleggur viðburðinn í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN). Þar gafst verðandi sérnámsgrunnslæknum tækifæri til að kynnast betur starfsemi stofnananna og þeim náms- og starfstækifærum sem í boði eru á norðurlandi. Boðið var upp á léttar veitingar og skapaðist gott tækifæri til samtals við lækna sem starfa og stunda nám á SAk og HSN.
Hannes Petersen, kennslustjóri sérnámsgrunnslækna, og Harpa Snædal, yfirlæknir unglækna, hafa tekið þátt í kynningunni ár eftir ár. Í ár bættust í hópinn Guðni Arnar Guðnason, forstöðulæknir lyflækninga, og sérnámslæknarnir Kamilla Dóra Jónsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
„Það skiptir okkur miklu máli að verðandi sérnámsgrunnslæknar fái góða innsýn í það sem SAk hefur upp á að bjóða. Hér fá læknar tækifæri til að öðlast fjölbreytta klíníska reynslu, vinna náið með reyndu fagfólki og taka virkan þátt í starfsemi sjúkrahússins,“ segir Hannes Petersen.
Harpa segir gott námsumhverfi og öfluga handleiðslu meðal helstu styrkleika SAk sem námsstofnunar.
„Við viljum að ungir læknar upplifi SAk sem stað þar sem þeir fá bæði góða handleiðslu og tækifæri til að vaxa í starfi. Nálægðin í starfseminni og gott samstarf milli fagstétta og sérgreina er einn af styrkleikum sjúkrahússins og skapar gott námsumhverfi,“ segir Harpa.
Námslæknarnir í hópnum gátu jafnframt miðlað eigin reynslu af námi og starfi á SAk og gefið verðandi sérnámsgrunnslæknum innsýn í daglegt starf ungra lækna á sjúkrahúsinu.
„Einn af kostunum við að starfa hér er að maður fær snemma tækifæri til að taka virkan þátt í klínísku starfi, fylgja fjölbreyttum tilfellum eftir og taka þátt í aðgerðum og öðrum verkefnum. Aðgengi að slíkum námstækifærum er gott og maður fær tækifæri til að axla ábyrgð samhliða góðum stuðningi. Svo er auðvitað stór kostur að búa á Akureyri, þar sem stutt er í allt sem Norðurland hefur upp á að bjóða,“ segir Kamilla Dóra Jónsdóttir deildarlæknir.