Fara beint í efnið
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða
Sjúkrahúsið á Akureyri Forsíða

Sjúkrahúsið á Akureyri

Hver mínúta skiptir máli: Skráum öll hjartastuðtæki í kortasjá

16. október 2026

Í tilefni Alþjóðlega endurlífgunardagsins í dag, 16. október, eru eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja hvattir til að skrá tækin sín í nýja kortasjá hjartastuðtækja. Markmiðið er að auðvelda almenningi og Neyðarlínunni að finna hjartastuðtæki þegar hjartastopp verður en hver mínúta getur skipt sköpum.

Hjartastuðtæki er að finna víða um land, meðal annars á vinnustöðum, íþróttamannvirkjum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þegar hjartastopp verður skiptir máli að vita hvar næsta hjartastuðtæki er að finna. Með skráningu hjartastuðtækja í kortasjána verður auðveldara fyrir almenning og Neyðarlínuna að finna tækin fljótt og bregðast við þegar mest á reynir.

Einfalt að skrá hjartastuðtæki

Skráning hjartastuðtækja er þegar hafin og unnið er að því að ná inn sem flestum skráningum áður en kortasjáin verður formlega opnuð.

Skráningarferlið er einfalt og tekur aðeins nokkrar mínútur. Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja geta jafnframt valið hvort upplýsingar um staðsetningu tækisins verði sýnilegar almenningi eða eingöngu aðgengilegar Neyðarlínunni.

Eigendur og umsjónaraðilar hjartastuðtækja eru því hvattir til að taka þátt í verkefninu og skrá tæki í sinni umsjón.

Þorbjörg Katrín Davíðsdóttir er verkefnastjóri skráningar hjartastuðtækja og starfar á mennta- og vísindadeild Sjúkrahússins á Akureyri: "Þetta er mikilvægt verkefni þar sem hver mínúta frá hjartastoppi að stuði skiptir gríðalega miklu máli. Því styttri tími því meiri von. Ég vil bara hvetja alla, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir að skrá hjartastuðtækin sín."