Hlaut styrk til að rannsaka fylgjuþurrð
18. febrúar 2026
Jóhanna Gunnarsdóttir, forstöðumaður fræðasviðs fæðinga- og kvensjúkdómalækninga Landspítala og Háskóla Íslands, hefur hlotið verkefnastyrk frá Rannís til umfangsmikillar rannsóknar á vanstarfsemi fylgju, svokallaðri fylgjuþurrð, og áhrifum þess á fæðingu barns. Verkefnið ber heitið „Innsýn í fylgjuþurrð með fylgjuvefjaskoðun til að bæta forspá um meðgöngueitrun og andvana fæðingar.“ Í rannsóknarhópnum er Alexander Smárason, yfirlæknir fæðinga- og kvensjúkdómalækninga á SAk og prófessor við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri og SAk.

Um rannsóknina Markmið rannsóknarinnar er að bæta forspár um snemmkomna fylgjuþurrð, sem birtist oft sem meðgöngueitrun, og bæta greiningu síðkominnar fylgjuþurrðar sem getur valdið fósturdauða fyrirvaralaust án einkenna. Ólíkt öðrum rannsóknum verður stuðst við fylgjuvefjaskoðun til að skilja betur ástæður fylgjuþurrðar. Rýnt verður í tvær vefjameinafræðilegar tegundir fylgjuþurrðar, blóðflæðistruflun og bólgu í fylgjutotum. Rannsóknarhópurinn hyggst auka skilning á fylgjuþurrð og afleiðingum hennar með því að tengja vefjaskemmdirnar við einkenni og lífmerki. Nokkur lífmerki eru talin endurspegla flæðistruflun í fylgjunni snemma í þungun og hafa þokkalegt forspárgildi fyrir snemmkominni meðgöngueitrun. Ný lífmerki eru nauðsynleg til að bæta forspárgildi skimunar og þetta rannsóknarþýði mun gera rannsakendum kleift að leita að sértækum lífmerkjum fyrir flæðistruflun í fylgju. Lífmerki sem gæfu til kynna bólgusvörun seint í meðgöngu gætu greint hvaða börn eiga á hættu á að deyja skömmu fyrir fæðingu vegna síðkominnar fylgjuþurrðar og þannig gert kleift að afstýra dauðsföllum með framköllun fæðinga í tæka tíð. Samþætting klínískra, lífefnafræðilegra og vefjafræðilegra gagna verður dýrmætur grunnur að framtíðar rannsóknum og mun stuðla að bættri forspá og forvörnum gegn alvarlegum afleiðingum fylgjuþurrðar. Rannsóknarhópurinn Auk Jóhönnu og Alexanders eru í hópnum: Þóra Steffensen, sérfræðingur í fylgjumeinafræði á Landspítala og Tampa General Hospital í Bandaríkjunum Jón Jóhannes Jónsson, yfirlæknir erfða- og sameindalæknisfræðideildar Landspítala og prófessor við HÍ Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir fæðingateymis Landspítala og lektor við læknadeild HÍ Ragnheiður I. Bjarnadóttir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir á Landspítala Brynhildur Tinna Birgisdóttir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir á Landspítala og rannsakandi við Karolinska Institutet Alþjóðlegt samstarf Verkefnið verður unnið í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu, Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Karolinska Institutet í Stokkhólmi og Rikshospitalet í Kaupmannahöfn. |